Fréttir



Velkomin á heimasíðu Hrímnis Chihuahua.
Welcome to Hrimnis Chihuahua webpage.
 

Gleðileg jól og farsælt komandi ár!


Des 2011
Paddan, (Stekkur Matthea Padda til Hrímnis)
varð 5. stigahæsti síðhærði Chihuahua ársins 2011 og 2. stigahæsta tíkin



Í hvítum Dvergschnauzer komust 3 hundar á topplistann:
#3 Svarthöfða Javier Frosti ( nr. 2 rakkar)
#5 Hrímnis Sædís For Svarthöfða (nr. 2 tíkur)
#6 Caruso of Taita's Ushabti

Padda (Stekkur Matthea Padda til Hrímnis) is #5 LC of the year and #2 LC female
In White Miniature Schnauzers dogs owned by or bred by Hrimnis and Svarthofda are no 3, 5 & 6 on the top white minis of the year 2011.


Uppfært des 2011
Síðhærðir hvolpar hjá Stjörnuskins ræktun sjá undir Hvolpar/Puppies

2 rakkar og 1 tík 




Uppfært nóv 2011:
Matthea Padda sýningar og heilsufar (shows and patellas)

Uppfært (updated) mars 2011:
Matthea sýningar og augnskoðun (shows and eyes)
Hrímnir sýningar (shows)
Skrímsli augnskoðun (eyes)



Síðan er í vinnslu (nóv 2010)
The website is being updated (nov 2010)


Hvolpar fæddir 25. maí sl.
25. maí sl fæddust 3 hvítar dvergschnauzer tíkur undan
Zaphiru (Xerra Svarcava) og Casper (Præstekjærs Jamie).



Hvolpar fæddir 1. nóv 2009.

Chihuahua hvolpur



Svolítið síðbúnar fréttir.
Svarthöfða Hrímnis Freyr Kaldi gerði sér lítið fyrir í ágústlok og náði sér í danskt meistarastig
ásamt því að verða 4. besti hundur sýningar.

Svarthofda Hrimnis Freyr Kaldi got a danish certificate and BIS-4 on a show in Blovstrod, Denmark.



Mynd af Spotta sem var tekin á afmælishátíð HRFÍ í VÍS Agria myndatökunni.
Ljósm; Rakel Ósk


Meiri myndir









Hvolparnir skruppu í dag í heimsókn til Berglindar og tók hún nokkrar myndir af strumpunum. Hér fyrir neðan er mynd af tíkinni en ekki náðust eins fínar myndir af rakkanum.






Fullt af fréttum :)
Hvolparnir undan Kamelu og Tý fæddust 19. maí sl og komu ein síðhærð tík og einn snöggur rakki.
Á myndunum hér að neðan eru þau Skráma og Vargur 10 daga gömul.
Skellti einnig inn myndum af stubbunum Frera (Hrímnis Felix Frera á Stekk) og Hrímni (Stjörnuskins Hrímni á Stekk) sem voru teknar í góðu veðri í dag á milli skjálfta :)
Hrímnir fer á sína fyrstu sýningu eftir tæpan mánuð en Paddan, Vargurinn (Þula)
og Síbería eru einnig skráðar.
Snásarnir Tobba (Jafrak Snow Wonder) og Caruso (Caruso of Taita's Ushabti) eru á leið í víking.
Tobba fer núna snemma í janúar til Danmerkur en seinna í sumar yfir til Svíþjóðar þangað sem Svarthöfðaræktun flytur. Caruso mun verða á Íslandi þar til í haust en þá mun hann fara til Danmerkur í lán til ræktanda. Zaphira og Casper verða áfrám hér á Íslandi.

Puppies from Kamela (INTCH ISCH Brjansstaða Dagur Snaer x Himna Dimma Nott) and Tyr (Small is Beautiful my Precious x Stjörnuskins Blida Perla) were born on may 19th. We got one smooth male and one long coated female. (Pics  below). Also pics of Himnir and Freri but Hrimnir will go to his first show in late June, Padda, Thula and Siberia will also go.
Part of the white miniature schnauzers are moving abroad. Tobba will go in June to Denmark and will stay there until late summer when she will relocate with kennel Svarthofda to Sweden. Caruso will go to Denmark on lease in the fall. Zaphira and Casper will stay in Iceland.

Vargur og Skráma





Hrímnir





Freri á fullu



 
Hvolpar væntanlegir í maí, sjá nánar undir got. (Puppies expected in May).

Búið er að uppfæra myndasíðun (New Pics)
Búið er að uppfæra tenglana (New Links)


Mig langar að birta hér ritstjórapistil sem ég skrifaði fyrir rúmu ári síðan í tímaritið Dýrin mín.

Í þessu blaði er kynning á hundategund sem ég vil kalla "mína tegund". Ég
hef átt Chihuahua hátt í 6 ár og verð hrifnari af tegundinni með degi
hverjum. Chihuahua hefur ekki neitt afskaplega gott orð á sér á Íslandi,
margir sem telja þetta óalandi gjammara sem kunna ekki að labba.
Mín reynsla af tegundinni er allt önnur, ég sé risastóra hunda í smáum umbúðum
sem geta allt það sama og aðrir hundar, hvort sem er að læra nýja hluti eða koma með
í fjallgöngur og hefur minn elsti líklega hlaupið upp og niður Helgafellið 10 sinnum.
Þegar fólk spyr mig hvort það sé nokkuð mál að vera með svona
smáhund sem ekkert fer fyrir segi ég yfirleitt já. Eini munurinn á því að
vera með Chihuahua eða stóran hund er aðeins minni fæðiskostnaður, allt
annað er eins, báðir þurfa uppeldi og aga, hreyfingu og umönnun. Því miður
er það svo með margar smáhundategundir að fólk fær sér hund án þess að hugsa
út í eiginleika hans eða uppruna og gerir sér ekki grein fyrir þeirri vinnu
sem fylgir því að eiga hund. Frá fyrsta degi þarf að gæta þess að kynna
hundinn fyrir flestu því sem síðar verður á vegi hans til þess að eiga hund
sem er virkilega vel umhverfisþjálfaður og nær jafnvægi í sínu umhverfi. Ég
tel að ein af ástæðum fyrir slæmu orðspori tegundarinnar hér á landi sé að
margir hafa gert þau mistök að ofvernda hundana vegna stærðar. Ekki bætir
svo úr að gífurlegt magn er af vanhugsuðum gotum þar sem ekki er einu sinni
haft fyrir því að skoða heilsufar foreldra eða forfeðra og þeir stundum ekki
einu sinni þekktir. Stundum sjást jafnvel auglýsingar sem selja smáhund sem
kallaður er Chihuahua án þess að nokkur sönnun liggi fyrir því og hvolpurinn
sagður tilvalinn í handtöskuna. Þó að hundur passi í tösku er hann ekki
hannaður til þess að dvelja í tösku. Þessi vanhugsuðu got af umdeildum
uppruna koma svo slæmu orði á þessa annars ágætu tegund og góð eintök af
tegundinni.

Chihuahua á ekki að vera feiminn, hann á heldur ekki að vera árásargjarn en
þetta er vakthundur sem lætur sko ekkert fram hjá sér fara og þolir það
afskaplega illa þegar honum er kippt úr jarðsambandi af fólki sem ætlar sér
að fá að halda á litla krúttinu. Einnig hafa þeir ekkert sérstaklega gaman
af því þegar fullorðnir karlmenn finna hjá sér einhverja óskiljanlega þörf
fyrir því að gelta á hundana en hundarnir gera sitt besta til að svara þeim.

Ef þú ert í hundahugleiðingum hugsaðu þá um það hvort hundur hentar þínum
núverandi lífsstíl (ekki draumalífsstílnum) og hvort sú tegund sem þú
heillast mest af henti þér og þínum þörfum. Hugsaðu svo hvort þú ert
tilbúin/n að þrífa upp ælu og fleira miður geðslegt um miðja nótt ásamt því
að greiða óheyrilegar upphæðir í dýralæknakostnað. Hugsaðu svo hvort þú
leggur í það að hvolpurinn nagi kannski húsgögn og aðra innanstokksmuni eða
nýju fínu skóna þína. Hugsaðu svo hvort þú ert tilbúin/n í það vesen sem
fylgir því að finna pössun fyrir hundinn ef þú ætlar í frí til útlanda ásamt
því að þú verður ekki lengur velkomin/n hvert sem er ef þú ert með hund.
Einnig þarf að hugsa um hvar á að fá hundinn enda ræktendur misjafnir og með
misjafnar áherslur. Ekki gleyma svo athugasemdunum um útlit hundsins,
hundahald í borg, ofnæmi eða hvað sem tengist hundum þar sem allir öðlast
skotleyfi á þig. Minni svo á að það þarf að tína upp eftir hundana - ALLTAF
- svo lengi sem hann lifir sem gæti alveg farið upp í 15 ár. Ef svarið við
öllum þessum spurningum er að þú sért tilbúin/n í þennan pakka, gefðu þér þá
meiri tíma og hugsaðu aftur ... og aftur. Ef svarið er það sama eftir góða
umhugsun og pælingar þá óska ég þér alls hins besta sem hundaeiganda og bið
þig að hafa húmor fyrir uppátækjum hundsins og njóta allra góðu stundanna
sem eru framundan með nýja félaganum.

Kv.
Klara





Loksins komin mynd af Hrímni og ný af Pöddunni :)
Takk fyrir myndirnar Ásta María.

Hrímnir 9 mánaða


Paddan 1 árs


Sýningin búin
Þá er mars sýningu HRFÍ lokið, Paddan var að mæta í fyrsta sinn á sýningu og þetta var líka fyrsta sýning Kamelu síðan við eignuðumst hana. Árangurinn var hreint ágætur og enginn hundanna fékk síðri einkunn en VG og kom inn eitt íslenskt stig og eitt alþjóðlegt í viðbót á snásana.

HRFÍ, dómari: Siv Jernhake
Paddan (Stekkur Matthea Padda til Hrímnis) Excellent
Kamela (Perluskins Kamela Sól) Very Good

Schnauzer
Caruso (Caruso of Taita's Ushabti) Excellent, BM-2, CACIB
Zaphira (Xerra Svarcava) Excellent, BF-2, CAC
Casper (Presteskjærs Jamie) Very Good






Gotsíðan uppfærð með nýjum myndum (21.10.2008)




Hvolpasíðan uppfærð með nýjum myndum (6.10.2008).



Velkomin á heimasíðu Hrímnis Chihuahua.

Þá er síðan loksins komin með þokkalega mynd á sig og upplýsingar um hundana komnar inn ásamt tegundarkynningu.
chihuahua@chihuahua.is
Allur réttur áskilinn © 2007 - 2009. Öll afritun á efni (og myndum) síðunnar er óheimil.
All rights reserverd © 2007 - 2009