Tegundin
Chihuahua eru litlir árvökulir hundar, þeir hafa þá ímynd að vera aðeins
kjölturakkar
eða töskuskraut en geta mikið meira en það. Chihuahua hafa mikið
úthald miðað við stærð
og hafa gaman af og þurfa hreyfingu eins og aðrir
hundar, ásamt því að þeir hafa þörf
fyrir að fá að vera hundar og meðhöndlaðir
sem slíkir. Þeir eru dyntóttir en geta lært og
unnið, einn Chihuahua hefur
lokið bronsprófi og annar starfar fyrir Rauða Krossinn
og fleiri eru að
undirbúa sína hunda fyrir vinnupróf og vinnu.
Saga
Uppruni
Chihuahua er ekki þekktur en ýmsar vísbendingar um hann hafa komið fram.
Olmekar
í Mexíkó átu hunda sem fundust á svæðinu um 1300-400 f.kr. Á útskurði
Tolteka
frá 9. öld er sýnd mynd af nokkuð smáum hundi, síðhærðum með reist
eyru og
skott. Sá hundur hefur verið nefndur Techichi og er talinn forfaðir Chihuahua
og
annara mexíkanskra og mið-amerískra tegunda. Toltekar ræktuðu þessa hunda
aðallega til átu. Aztekar nýttu svo þessa sömu hunda fyrir ýmsar trúarathafnir
en ekki
sem selskapshunda. Í kringum 1500 hvarf veldi Azteka af spjöldum
sögunnar og einnig
Techichi en síðan í kringum árið 1850 fundust villtir
smáhundar í stærsta héraði Mexíkó, Chihuahua.
Þeir hundar hlutu nafn sitt af
fundarhéraðinu og voru um margt líkir Techichi hundinum nema munurinn er helst
sá að nútíma Chihuahua kemur í tveimur feldafbrigðum,
síðu og snöggu og er
einnig nokkuð smærri en Techichi miðað við fornleifar sem sýna
myndir af
tegundinni.
Chihuahua
var mjög fágæt hundategund allt til ársins 1900 en þá hófst ræktun á tegundinni
en tók þó langan tíma að byggja upp stofninn. Í fyrstu var tegundin aðeins
ræktuð
í Mexíkó og Bandaríkjunum en á tímabilinu 1930-1950 fluttu nokkrir
frumkvöðlar
tegundina til Bretlands og hafa síðan þá verið leiðandi í ræktun á
tegundinni ásamt
Ítalíu og norðurlöndunum síðustu ár.
Það
var svo ekki fyrr en upp úr 1960 sem Chihuahua náði almennum vinsældum og
komu
þær í kjölfar sjónvarpsumfjöllunar um tegundina og hafa vinsældirnar aukist
gífurlega
síðustu ár og stundum á kostnað góðrar ræktunar. Það var svo
sérstaklega þegar
Chihuahua fór að birtast reglulega í sjónvarpi sem
fylgihlutur stjarnanna að tegundin fór
sumsstaðar að verða líkt og
fjöldaframleidd og markaðssetningin var sú að ekkert þyrfti
að hafa fyrir þeim
og að þeir væru hin fínustu töskudýr.
Chihuahua
hefur breyst nokkuð í útliti síðustu áratugi en í upphafi voru hundarnir
háfættari og ekki eins þéttbyggðir og þeir eru í dag en alltaf hefur aðalsmerki
tegundarinnar verið eplalagað höfuð, reist eyru og skottið borið í boga eða hálfhring yfir baki.
Saga Chihuahua á Íslandi
Fyrstu
Chihuahua hundarnir voru fluttir til landsins frá norðurlöndunum árin 1994 og
1995 og eru 7 hundar sem mynda grunninn að tegundinni hér á landi;
Bonny-Bell
Stay Happy go Lucky, Mars-Viola Canina, Bubbelina's Empty Pockets,
Hollanli's
Christal Estevan, Tiddy's Panama, Bonny-Bell Masked Bandito og
Bel Ami Chis's
I'm the Boss. Fyrsta gotið á Íslandi var svo að Brjánsstöðum árið 1995
en upp
úr því fór að bera mun meira á tegundinni en þó mest síðustu ár enda stofninn
orðinn mun stærri með auknum innflutningi og ræktun. Frá upphafi skráningar
hafa
yfir 400 Chihuahua hundar verið skráðir með ættbók frá Hrfí og má áætla að
stofnstærðin
sé um 300 dýr í dag og sífellt bætist við enda í sífellu flutt inn
nýtt blóð í stofninn. Chihuahuadeild HRFÍ (Hundaræktarfélags Íslands) var svo
stofnuð árið 2005 en verksvið deildarinnar er að halda vörð um ræktun
tegundarinnar og stefna að ræktunarmarkmiðum viðurkenndum af FCI, vera
ráðgefandi og búa yfir þekkingu er varðar ræktun og að hafa þekkingu á
sjúkdómum tengdri tegundinni. Einnig stendur deildin fyrir fræðslu um tegundina
og göngum þar sem Chihuahua eigendur viðra hundana í félagsskap annara
áhugamanna um tegundina.
Útlit
Aðalsmerki
Chihuahua er eplalagað höfuðið, reistu eyrun og skottið sem er borið í
boga eða hálfhring yfir bakið. Hundurinn
skal vera þéttbyggður og skal hann vera örlítið
lengri en hann er hár. Mjög
eftirsótt er að fá fram hund sem er nánast ferhyrndur, þá sérstaklega rakkarnir
en tíkurnar mega vera aðeins lengri vegna meðgöngu hvolpa.
Trýnið á að vera
stutt og beint og ennið að bunga örlítið yfir rót trýnisins. Bitið skal vera
skærabit eða tangabit (jafnt bit) en undirbit, yfirbit eða hvers konar
óeðlilegt bit er verulega óæskilegt. Augun skulu vera stór en ekki útstæð, sýna
mikil svipbrigði og vera mjög dökk. Ljósari augu eru leyfileg en ekki
eftirsótt. Eyru skulu vera stór, upprétt og vel opin
og með 45° halla. Eins og
áður sagði skal hundurinn vera þéttbyggður og sterklegur, þá sérstaklega
rakkarnir, með nokkuð stutt beint bak, mitti og brjóstkassinn skal ekki vera
tunnulaga. Skottið skal vera sett hátt, breitt við rót og mjókkar fram og ætíð
skal það
vera uppi á hreyfingu en aldrei á milli lappanna eða hringað fyrir
neðan baklínu.
Chihuahua á hreyfingu skal vera orkumikill, árvökull og bera
bæði höfuð og skott hátt.
Óásættanlegir
gallar í Chihuahua: Árásargjarn eða mjög feiminn hundur, dádýrslegur hundur
(hundur sem er langur, háfættur, mjósleginn á líkama, háls og höfuð), hundar
með stóran lindiblett á höfði, stutt eyru og lafandi eyru, mjög langur líkami,
skottleysi, síðhærðir hundar með mjög síðan og fíngerðan feld, snögghærðir
hundar með skallabletti og hundar sem vega yfir 3 kg.
Tvær feldgerðir eru leyfilegar en það
eru snöggur feldur og síður feldur. Hundur með
síðan feld á að vera með makka,
eyrnaskúfa, löng hár á skotti og fótum og buxur.
Feldurinn á að vera fínn og
mjúkur, sléttur eða örlítið liðaður en má ekki vera krullaður.
Stærð
Chihuahua er aðeins mæld í þyngd og skal hundurinn vega frá 500 gr. upp að 3 kg
en kjörþyngd er á milli 1,5-3 kg en hundar yfir 3 kg eru afar óæskilegir í
ræktun.
Einnig er ekki mælt með því að rækta undan tíkum sem vega ekki meira en
1.800 gr.
Oft er Chihuahua ekki kominn í fulla þyngd fyrr en á milli 2 og 3 ára
aldurs en þá kemur vöðvafyllingin oftast fram.
Allir
litir eru leyfðir í tegundinni og allar litasamsetningar en búið er að banna í
mörgum
löndum svokallaðan merle lit sem er í raun frekar genagalli en litur í
þessari tegund og
er ekki upprunninn náttúrulega í tegundinni. Mikið hefur
borið á þessum lit í Bandaríkjunum ásamt ræktun á tebolla Chihuahua og einnig á
svokölluðum dádýrs Chihuahua.
Ræktun á merle hundum er mjög vandasöm enda eru
hvolpar undan merle hundum
í mun meiri áhættu á heyrnar- og sjónvandamálum.
Tebolla Chihuahua eru dvergvaxnir Chihuahua, oft mjög fíngerðir og brothættir
ásamt því sem ýmsir heilsufarskvillar fylgja slíkri ræktun svo sem hjartagallar
og vatnshöfuð. Dádýrs Chihuahua (Deer Type Chihuahua) er ræktun á hundum sem
líta hreint ekki út eins og Chihuahua skal líta út og eru mjög
óæskilegir í
alla ræktun.
Skapgerð
Chihuahua
hefur oft verið sagður stór hundur í litlum líkama enda með eindæmum
hugrakkur
og lætur óhikað alla vita að hann er stærstur, mestur og bestur. Chihuahua skal
vera hugrakkur, snöggur, líflegur og árvökull. Hann er hinn besti vakthundur og
fylgist vel
með öllu. Chihuahua á hvorki að vera árásargjarn eða mjög feiminn
en hvort tveggja getur orðið ef hundurinn fær ekki næga umhverfisþjálfun á
hvolpsaldri. Felst umhverfisþjálfun í
því að kynna hvolpinn fyrir sem flestu í
umhverfi hans. Chihuahua er ekki vinnuhundur en nokkrir hafa staðið sig vel í
hundafimi og einn hefur lokið bronsprófi í hlýðni ásamt því sem annar er virkur
heimsóknarhundur hjá Rauða Krossi Íslands og heimsækir reglulega langveik börn.
Chihuahua getur verið dyntóttur og tekur oft sinn tíma í hlutina, til dæmis það
að koma sér að matnum. Chihuahua eru ekki taldir heppilegir barnahundar enda
smáir og ekki þolinmóðasta hundategundin gagnvart áreiti þó að alltaf séu á því
undantekningar.
Heilsufar:
Chihuahua
hefur löngum verið talin einstaklega heilsuhraust tegund en síðustu ár hafa
verið að koma upp ýmis heilsufarsvandamál. Ekki er víst hvort þau eru ný af
nálinni eða einfaldlega ný uppgötvuð. Helsta vandamálið í dag er hnéskeljalos
sem hrjáir marga
hunda en einnig eru margir einkennalausir og ógreindir. Sjá
nánar grein um hnéskeljalos í blaðinu.
Erlendis
hafa greinst augnsjúkdómar í tegundinni svo gott er að láta augnskoða hundana
en helstu sjúkdómarnir eru: PRA (vaxandi sjónhimnurýrnun) og Cataract
(starblinda) en báðir þessir sjúkdómar leiða til blindu. Míturhljóð í hjarta
greinist yfirleitt ekki fyrr en um eða
eftir 8 ára aldur en þetta er
hjartasjúkdómur sem getur þróast yfir í hjartabilun með vökva í lungum. Opin
fontanella (lindiblettur) er arfgengur galli og sé opið stórt er hætta á
flogum.
Tannleysi
er ekki óalgengt í tegundinni og þá bæði vegna erfða og einnig vegna þess hve
tegundin er gjörn á að safna tannsteini sem leiðir svo til tannholdsbólgu og
tannmissis.
Umhirða
Eins
og áður sagði er umhverfisþjálfun mjög mikilvæg fyrir Chihuahua hunda til þess
að þeir virki sem best í umhverfinu. Chihuahua þarf mjúkan aga og ekki þýðir að
beita þá hörku
eða fara að þeim með offorsi. Þeir þurfa stundum tíma til að
taka út aðstæður og þá er
best að gefa þeim þann tíma. Lítil feldhirða fylgir
tegundinni en gott er að bursta þá
annað slagið og að venja þá við handfjötlun
svo að dýralæknaferðir verði auðveldari.
Einnig þarf að klippa klær reglulega.
Gott er að gefa Chihuahua hvolpum að borða
þrisvar til fjórum sinnum á dag og
fullorðnum hundum tvisvar sinnum. Algengt er að
Chihuahua séu frekar matgrannir
fram á fullorðinsaldur og frekar renglulegir enda ná
þeir ekki fullri fyllingu
fyrr en á milli 2 og 3 ára aldurs. Chihuahua þarf reglulega hreyfingu til þess
að líða vel og fullorðinn hundur í formi þolir vel styttri fjallgöngur og góða
göngutúra. Hvolpa ætti að hreyfa stutt í einu til þess að leggja ekki of mikið
álag á liði og bein í vexti. Mikið er til af fatnaði gerðum fyrir tegundina sem
er þó oftast ónauðsynlegur fyrir þá
síðhærðu en þeir snögghærðu eru iðulega
meiri kuldaskræfur og getur verið gott að eiga
hlýtt vesti til þess að sannfæra
þá um að fara með út á veturna. Helsta vandamálið sem
heyrist um frá Chihuahua
eigendum er það að suma þeirra reynist erfitt að húsvenja enda
lítill hundur
sem kemst auðveldlega á bak við húsgögn og nýtir sér þau svæði frekar en að
fara út í kuldann. Vel hefur gefist að afmarka svæði hvolpa þannig að þeir hafi
ekki aðgang
að öllu húsrýminu og auðveldara sé að hafa eftirlit með þeim. Ennig
hefur borið á því að einstaka hundar taki upp á því að merkja innandyra þegar
gelgjunni er náð og kemur það
upp vegna mismunandi ástæðna, til dæmis ef fleiri
hundar eru á heimilinu og pissustríð
upphefst, ef ókunnugir hundar koma á
heimilið o.fl.
Chihuahua
er ekki fyrir alla en þeir sem kynnast tegundinni heillast iðulega af henni
enda eins og sannur Chihuahua myndi segja; Chihuahua - stærstir, mestir og
bestir.
Heimildir
Standard
FCI um tegundina
The
Complete Dog Book
Heimasíða
breska Chihuahua klúbbsins (the-british-chihuahua-club.org.uk
Heimasíða
Chihuahuadeildar HRFÍ
Þýðing
Brynju Tomer á standardi tegundarinnar
Merle
Chihuahua's - time to call a halt - Malcolm B. Willis
Allur réttur áskilinn © 2007 - 2009. Öll afritun á efni (og myndum) síðunnar er óheimil.
All rights reserverd © 2007 - 2009